Knattspyrna 1980-2000

Í byrjun 9. áratugarins var Völsungur í 2. deild framan af og gerði liðið sig annað slagið líklegt til að blanda sér í toppbaráttuna. Árið 1986 gerðist það undir stjórn Guðmundar Ólafssonar að liðið náði að tryggja sér sæti í efstu deild. Þá gekk allt eftir og að loknum sigurleik á móti Selfossi í lokaumferðinni fengu Völsungar bikarinn afhentan í Félagsheimilinu að viðstöddum 800 manns. Sérstök gestabók var gerð fyrir atburðinn og rituðu 900 manns sig í hana. Í skýrslu formannsins, Hallmars Freys Bjarnasonar var því lýst að hann hafði tekið sér vikufrí og haft opið hús allan tímann til að halda upp á afrekið.

Völsungur var tvö ár í efstu deild. Þeir náðu naumlega að halda sér uppi fyrra árið en það seinna var Völsungur í botnsætinu allt sumarið og einkenndist sumarið af skorti af sjálfstrausti og óheppni. Þjálfaraskipti á miðju sumri hjálpuðu heldur ekki. Liðið féll og var eitt ár í 2. deildinni áður en 3. deildin tók við. Þá var tekin ákvörðun um að byggja liðið á ungum heimamönnum frekar en að fá að leikmenn. Til að annast þetta uppbyggingarstarf var ráðinn sovéskur þjálfari til tveggja ára. Hann hét Ivan Alekseyevich og hafði spilað og leikið með Spartak Moskvu í Rússlandi.

Þessi vegferð fór ekki eins og ætlast var til en liðið var nokkur ár um miðja 3. deildina. Sigurður Lárusson náði að stýra liðinu til sigurs í deildinni 1995. Þá sigraði Völsungur deildina með yfirburðum. Liðið náði sér ekki á strik í annarri deildinni og féll strax aftur niður í 3. deildina. 

Á 9. og 10. áratugnum var komin festa í barna- og unglingastarf félagsins í knattspyrnu. Algengt var að þjálfarar meistaraflokksins höfðu yfirumsjón með allri þjálfun hjá félaginu. Yngri flokkarnir tóku fyrst þátt í Íslandsmóti 1972 og til að byrja með voru það 3., 4. og 5. flokkur sem tóku þátt. Seinna bættist 6. flokkur við og einstaka sinnum kom fyrir að 2. flokkur var skráður til leiks. Yngri flokkarnir stóðu sig oft vel, flokkar komust til dæmis í úrslitakeppnir.

Sérstakt unglingaráð var stofnað innan knattspyrnudeildar Völsungs árið 1985. Þar var unnið mikið og gott starf, t.d. gerði ráðið æfingasvæði á Flatarholti árið 1993. Þar var unnin mikil sjálfboðavinna undir stjórn Aðalsteins Baldurssonar með stuðningu frá fyrirtækjum í bænum og bæjaryfirvöldum. Það er gott dæmi um það hvað foreldrastarf getur verið ómetanlegur þáttur við íþróttaiðkun barna og unglinga.

Gott ungmennastarf hjá Völsungi leiddi til þess að ungir Völsungar voru valdir í unglingalandslið og úrtaksæfingar. Fyrstu Völsungarnir sem voru valdir voru þeir Kristján Olgeirsson og Helgi Helgason árið 1976 og aftur árið 1977. Kristján var fyrirliði liðsins seinna árið. Aðrir leikmenn Völsungs sem voru valdir í unglingalandslið voru Olgeir Sigurðsson, Guðni Rúnar Helgason, Sigþór Júlíusson, Arngrímur Arnarson, Dagur Sveinn Dagbjartsson og Kristján Örn Sigurðsson.

Stúlknalið frá Völsungi er fyrst getið um árið 1979 en þá urðu þær héraðsmeistarar. Árin á eftir tóku þær þátt í héraðskeppnum og einnig voru þær skráðar í bikarkeppni KSÍ árin 1981 og 1982. Bæði árin náðu þær í átta liða úrslit. Stúlknalið var fyrst skráð til þátttöku á Íslandsmóti árið 1987 en þá var 2. flokkur kvenna skráður. Það kom síðan að því árið 1990 að meistaraflokkur kvenna var fyrst skráður til keppni í Íslandsmóti. Þá lék liðið í 2. deild en það árið var enginn unglingaflokkur. Liðið var síðan aftur skráð í 2. deildina 1993 en árangur stóð eitthvað á sér. Unglingaflokkar hjá stúlkum tóku síðan þátt á árunum 1992-94. Síðan kom langt hlé þar til kvennaflokkar tóku aftur þátt í Íslandsmóti.

Á þessum áratugum jukust umsvif knattspyrnudeildar til muna. Því fylgdi að fjármálin urðu sífellt stærri þáttur af starfseminni. Allur kostnaður sem rekstrinum fylgdi varð sífellt erfiðari. Þjálfun fór að kosta meira, leikmenn fóru að fá meira borgað og ferðalög urðu jafnvel dýrari líka. Innkoman jókst ekki samhliða þessu. Helstu fjáraflanir knattspyrnudeildar á þessum tíma voru leikskrár sem voru gefnar út, dagatöl og svo var fyrirtækjum seld skilti við knattspyrnuvöllinn. Jafnframt þessu voru seldar auglýsingar framan á keppnistreyjur liðsins. Kaupfélag Þingeyinga var lengi helsti styrktaraðili knattspyrnunnar og auglýsti vörumerki sem það hafði umboð fyrir.

1980

1981

1982

1983

1984

1985

1986

1987

1988

1989

1990

1991

1992

tölfræði Leifs
Skallgrímur - Völsungur 1992

1993

tölfræði Leifs

1994

tölfræði Leifs

1995

tölfræði Leifs

3. deildarmeistarar 1995

1996

tölfræði Leifs

1997

tölfræði Leifs

1998

tölfræði Leifs

1999

tölfræði Leifs

2000

tölfræði Leifs