Eftir að íþróttasalurinn í barnaskólanum var tekinn í notkun fjölgaði knattspyrnuiðkendum á Húsavík til muna. Fljótlega voru á annað hundrað Völsungar farnir að iðka knattspyrnu allt árið en áður voru knattspyrnuæfingar bundnar við sumartímann. Skömmu fyrir 1960 var Aðalsteinstúni út á Húsavíkurhöfða breytt í malarvöll fyrir knattspyrnu. Þessar tvær aðstöður bættu heldur betur aðstöðu Völsungs og áttu eftir að reynast vel. Reglulegum æfingum var komið á og strákar gátu farið að æfa knattspyrnu um leið og áhugi vaknaði. Knattspyrnuráð Völsungs var stofnað á 5. áratugnum og drifkraftar þess voru fyrst og fremst Júlíus Stefánsson og Freyr Bjarnason um og eftir 1960.
5. flokkur Völsungs í kringum 1970. Aftari röð frá vinstri: Aðalsteinn Árni Baldursson, Arnór Guðjohnsen, Ólafur Straumland, Hannes Karlsson, Sigurður Gunnarsson, Sigurkarl Aðalsteinsson, Helgi Helgason. Fremri röð frá vinstri: Björn Viðarsson, Gunnar Straumland, Björn Ingvarsson, Kristján Olgeirsson og Nói Björnsson.
Í byrjun 7. áratugarins tóku Völsungar á móti og heimsóttu lið á Norður- og Austurlandi. Erlent lið sótti Völsung heim í fyrsta skipti árið 1966 en þá komu tvö dönsk unglingalið. Keppnisferðir voru farnar til Skagafjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar, Akureyrar og Austfjarða. Árið 1966 spilaði meistaraflokkur Völsungs sautján leiki og sigraði tólf þeirra. Vilhjálmur Pálsson stýrði liðinu það ár og fylgdi því góða ári eftir með því að fara með liðið í Íslandsmótið 1967. Það ár tók meistaraflokkur Völsungs í fyrsta skipti þátt í 3. deild Íslandsmótsins. Meistaraflokkur karla hjá Völsungi hefur síðan þá tekið þátt í Íslandsmótinu. Fyrsta árið í 3. deildinni endaði liðið í 2. sæti deildarinnar. Það sama ár hélt Íþróttafélagið Völsungur upp á 40 ára afmæli og af því tilefni kom gullaldarlið Skagans til Húsavíkur og spilaði við heimamenn. Gestirnir unnu þann leik 0-1.
Völsungur – ÍA 1967Lið Völsungs frá 1967 sem urðu Íslandsmeistarar 1968. Aftari röð frá vinstri: Ingvar Þorvaldsson, Sigþór Sigurjónsson, Albert Sigtrygsson, Viðar Baldvinsson, Eiður Guðjohnsen, Gunnar Kjartansson.
Fremri röð frá vinstri: Sverrir Pálsson, Jón Ágúst Bjarnason, Sigurður Þ. Pétursson, Hlífar Karlsson og Hafliði Jósteinsson.
Tekin fyrir leik Völsungs og ÍA
Vilhjálmur Pálsson var þjálfari liðsins þriðja árið í röð árið 1968 þegar liðið tók í annað sinn þátt í 3. deildinni og í fyrsta skipti í bikarkeppni KSÍ. Völsungur vann 3. deildina það ár og var næstu tvö árin í 2. deild. Á öðru árinu í 2. deild féll liðið en fór upp aftur að ári liðnu undir stjórn Halldórs Björnssonar sem var spilandi þjálfari liðsins.
Nýr malarvöllur var vígður á Húsavíkurtúni árið 1969 og völlurinn var vígður með leik heimamanna í Völsungi og unglingalandsliði Íslands þann 29. mars. Unglingalandsliðið vann leikinn, 6-1.
Meistarar í 3. deild 1971.
Fremri röð frá vinstri: Sigurður Pétursson, Hafliði Jósteinsson, Helgi Steinþórsson, Hermann Jónasson fyrirliði, Ásmundur Sverrir Pálsson, Páll Ríkharðsson, Baldur Karlsson, Rúnar Arason. Aftari röð frá vinstri: Jóhannes Sigurjónsson, Helgi Hallgrímsson, Björn Arnarson, Viðar Baldvinsson, Stefán Haraldsson, Gísli Haraldsson, Guðmundur Jónsson og Halldór Björnsson þjálfari
Aftari röð frá vinstri: Halldór Bjarnason formaður knattspyrnudeildar, Eiður Guðjohnsen, Viðar Baldvinsson, Stefán Haraldsson, Hermann Jónasson fyrirliði, Helgi Steinþórsson, Gísli Halldórsson, Helgi Hallgrímsson, Birgir Steingrímsson og Anton Bjarnason þjálfari.
Fremri röð frá vinstri; Hafliði Jósteinsson, Hlífar Karlsson, Sigþór Sigurjónsson, Sigurður Pétursson, Albert Sigtryggson og Gísli Haraldsson.
Fram til ársins 1978 var Völsungur í 2. deild en það ár féll liðið niður í 3. deild en árið eftir vann liðið sig strax aftur í 2. deild, þá undir stjórn Einar Friðþjófssonar. Á 8. áratugnum tók liðið eins og áður segir þátt í bikarkeppni KSÍ. Liðið komst þá stundum í aðalkeppnina og árið 1974 komst liðið alla leið í undanúrslit keppninnar en féll þá úr leik gegn Íslandsmeisturum ÍA.
Í 50 ára afmælisriti Völsungs er annálaform þar sem gaman er að rifja upp knattspyrnuna. Það hefst hér á bls. 10
Á Melavellinum 1973.Fótboltaleikur. Mögulega vígsluleikurinn við Val á grasvellinumKnattspyrnulið Völsungs 1966. Aftari röð frá vinstri: Sveinn Pálsson, Eiður Guðjohnsen, Gunnar Sigurjónsson, Heimir Bessason, Hlífar Karlsson og Helgi Hallgrímsson. Fremri röð frá vinstri: Viðar Baldvinsson, Pétur Bjarnason, Sigurður Pétursson, Hafliði Jósteinsson og Árni Helgason.5. flokkur 1973
Aftari röð frá vinstri: Friðrik Jónasson, Friðbjörn Óskarsson, Birgir Skúlason, Björn Olgeirsson, Sigmundur Hreiðarsson, Þröstur Friðfinnsson, Leifur Grímsson, Jón Hrafn Björnsson, Kristinn Jörundsson þjálfari.
Fremri röð frá vinstri: Óskar Jóhannsson, Bjarni Pétursson, Elías Bjarnason, Jónas Óskarsson, Arnór Guðjohnsen, Gunnar Straumland, Kristján Eiðsson, Eiríkur Sigurðsson, Steingrímur Jónsson.
Ungir knattspyrnukappar um kringum árið 1977. Aftari röð frá vinstri: Brynjúlfur Brynjúlfsson, Jón Kristinn Haraldsson, Jón Ingi Guðmundsson, Stefán Baldursson, Þórir Aðalsteinsson, Gunnar Jónsson og Einar Jóhannesson. Fremri röð frá vinstri Arnar Laufdal, Birkir Elmarsson, Sigurgeir Ágúst Stefánsson, Skúli Skúlason, Ingi Jóhann Valsson, Sigurður Sigurðsson, Hilmar Þór Ívarsson og Skarphéðinn Ómarsson.