Badminton 1980-2000

Starfsemi badmintondeildar Völsungs takmarkaðist mjög af aðstöðuleysi þar til íþróttahöllin var tekin til notkunar. Miklar vonir voru bundnar við tíma í höllinni þar sem 32 gátu spilað í einu. Unglingastarf hafði aldrei náð flugi þar sem sú aðstaða sem gafst var rétt nóg fyrir þá eldri sem stóðu fyrir æfingunum. Þegar íþróttahöllin opnaði jókst þátttaka til muna en iðkendur voru um 150-160 í árslok 1987. Fram til þessa hafði badminton verið hugsað sem holl og góð hreyfing. Með þessum auknu umsvifum var farið að huga meira um badminton sem keppnisíþrótt. Því fylgdi þá aukin tilsögn og þjálfun barna og unglinga. 

Á næstu árum eftir opnun hallarinnar var reynt að fá þjálfara og keppnismenn frá Reykjavík til að þjálfa í stuttan tíma í senn. Starfsemin þróaðist í að haldið var jólamót fyrir börn og unglinga, innanfélagsmót skömmu eftir áramót fyrir eldri iðkendur, keppni við Siglfirðinga og Akureyringa sem varð með tímanum Norðurlandsmót. Það mót var haldið á stöðunum til skiptis einu sinni á ári. Þá var haldið Húsavíkurmót að vori og Völsungar sóttu önnur mót til Akureyrar og víðar.

Árið 1989 var fyrsta Norðurlandsmótið haldið á Húsavík. Á Norðurlandsmótunum var keppt í öllum greinum badmintons og í öllum aldursflokkum. Til að byrja með áttu Völsungar fáa meistara og þá aðeins í B-flokki. Guðrún Helgadóttir varð fyrsti Norðurlandsmeistari Völsungs í badminton en hún sigraði einliðaleik árið 1994 og hún sigraði einnig í tvíliðaleik ásamt Ásu Maríu Guðmundsdóttir.