Handknattleikur 1980-2000

Handknattleikur hafði verið í töluverði lægð þar til reynt var að æfa og keppa í handknattleik árið 1982. Aðstaðan á Húsavík hafði dregist aftur úr og því var heimavöllurinn á Laugum en þar var líka æft að hluta. Árið 1985 tók handknattleikurinn við sér að nýju þegar karlalið var sent til þátttöku á Íslandsmóti um haustið. Liðið byrjaði þá að æfa í nýju íþróttahöllinni sem var þó fjarri því að vera tilbúin. Árangurinn var ekki góður til að byrja með en hópurinn var fámennur og reynslulítill. Menn gáfust þó ekki upp og tók meistaraflokkur karla þátt í Íslandsmóti flest árin fram til 2000.

Stórt skref var tekið í handboltastarfinu á Húsavík þegar íþróttahöllin var formlega vígð 17. júní 1987. Vígsluleikurinn var ekki af verri endanum en landslið Íslands í handknattleik lék landsleik við Dani. Danirnir unnu þann leiki. Þarna voru Völsungar loksins komnir með handknattleiksvöll sem stóðst allar alþjóðlegar kröfu. Iðkendum fór fjölgandi í kjölfarið.

Meistaraflokkur karla hélt áfram að leika í 3. deild og á þessum tíma var fyrirkomulagi yngri flokka breytt. Í stað landshlutaskiptingar í riðla þá var flokkunum skipt í deildir eftir styrkleika. Andstæðingar gátu því komið alls staðar af landinu. Veturinn 1988-89 byrjuðu Völsungar á botninum með 5.,4. og 3. flokk karla og 4. og 3. flokk kvenna. Þessu fylgdi að sjálfsögðu aukinn kostnaður og af varð að ráðið leitaði eftir meiri aðstoð til foreldra við heimaleiki og akstur í útileiki. Undirtektir foreldra voru til fyrirmyndar sem auðveldaði allt starf.

Við aukin umsvif handknattleiksdeildar Völsungs varð fjármagnsþörfin enn meiri fyrir vikið. Fjáröflunarleiðir deildarinnar voru útgáfa leikskrár, seld auglýsinga í höllinni og síðan voru haldin vormót fyrir yngri flokkana. Þau mót voru fyrst haldin vorið 1990 og voru fyrir 6., 5. og 4. flokk. Til að byrja með voru þátttökuliði úr úr næsta nágrenni Húsavíkur en mótið stækkaði með tímanum. Fyrstu mótin voru haldin undir merki Toyota á Íslandi en helstu styrktaraðilar voru Toyota-umboðið á Íslandi, P. Samúelsson hf. og Bílaleiga Húsavíkur, umboðsaðila Toyota á Húsavík. Eftirspurnin varð með tímanum svo mikil að það var ekki pláss fyrir 4. flokk. 

Árið 1994 skipti mótið um styrktaraðila en Kaupfélag Þingeyinga tók við og hét mótið eftir það KÞ-mótið og varð þá aðeins fyrir 5. flokk, leikið var eina helgi í kringum mánaðarmótin apríl/maí. Þá var keppt í A, B og C liðum hjá bæði drengjum og stúlkum. Þegar mest var þá voru um 500 þátttakendur á mótinu frá 10 liðum. Það krafðist gífurlegs skipulags og segja má að mótið hafi tekið yfir bæinn þessa helgi. Handknattleiksdeildin fékk töluverðar tekjur af mótinu.

Handknattleiksdeild Völsungs, áður handknattleiksráð hefur starfað síðan á fimmta áratugnum. Fyrst voru aðeins stúlkur í ráðinu enda eingöngu stúlkur sem léku handknattleik. Með tilkomu íþróttasalarins í skólanum varð starfsemi handknattleiksráðs meiri. Vilhjálmur Pálsson varð formaður ráðsins 1962 og meiri festa koma á skipulag deildarinnar.

1980-1991

1992-2000