Fimleikar 1980-2000

Á haustmánuðum 1987 dró til tíðinda þegar ákveðið var að stofna fimleikadeild innan raða Völsungs. Guðrún Kristinsdóttir íþróttakennari stóð fyrir því að deildin yrði stofnuð. Fyrstu skrefin sem voru tekin voru að Guðrún greip tíma sem losnuðu í litla salnum í íþróttahöllinni. Hún hélt tíu tíma námskeið í fimleikum. Aðsóknin og áhuginn á þessu litla námskeiði var svo mikill að það var ákveðið að stofna fimleikadeild. Þá um haustið voru iðkendur orðnir um hundrað á aldrinum fimm til fjórtán ára. Æft var tvisvar í viku og aðstaðan var góð. Íþróttahöllin var nýlega tekin í gagnið, áhöldin voru ný og segja má að frá upphafi hafi öll áhöld verið til staðar fyrir fimleikaiðkun kvenna. Það lá fyrir að það tæki einhver ár að þjálfa upp keppnisfólk á Húsavík. Fljótlega var varið í samstarf við fimleikafélög, á Akureyri og í Reykjavík, og komu fimleikamenn til Húsavíkur til að sýna iðkendum hinnar nýju deildar hvernig farið var að. Vorið 1988 var fyrsta sýning deildarinnar haldin en þar sýndu iðkendur sem æft höfðu um veturinn listir sínar.

Annað starfsár deildarinnar var með svipuðu sniði og iðkendafjöldinn var álíkur fyrra ári. Fimleikaiðkendur sýndu á jólahátíð Völsungs og varð það fastur liður í starfinu upp frá því á jólahátíðinni og síðar á þrettándahátíðum á vegum félagsins sem tóku við af jólahátíðunum. Í mars 1989 ar fyrsta innanfélagsmótið í fimleikum haldið. Þar var keppt í sex flokkum fyrir iðkendur sjö ára og eldri. Það starfsár var það markmið deildarinnar að taka þátt í fimleikakeppninni á Landsmóti UMFÍ í Mosfellsbæ árið 1990.

Skipulag fimleikadeildarinnar varð fljótlega þannig að æfingar hófust í september, sýning í kringum áramót eða á þrettándagleði félagsins, innanfélagsmót var haldið í mars þar sem keppt var í öllum flokkum og svo var vorsýning deildarinnar haldin í maí. Árið 1993 fóru keppendur frá Völsungi í fyrsta skipti á Skrúfumót Fimleikasambands Íslands. Þátttakendur það árið vorum um 200 og alls staðar af landinu. Fjórar stúlkur fóru frá Völsungi og ein þeirra, Heiður Vigfúsdóttir vann fyrstu verðlaun í stökki á trampólíni. Skrúfumótið varð frá og með þessu ári fastur liður í starfinu í þónokkur ár. 

Guðrún Kristinsdóttir hélt utan um fimleikadeildina frá upphafi og fram að aldamótum (síðan mun lengur en meira um það seinna). Til að byrja með var Hrefna Regína Gunnarsdóttir þjálfari með Guðrúnu og svo þegar fimleikadeildin tók að sér íþróttaskólann veturinn 1992-93 var fjölgað í þjálfarateyminu. Flest árin voru þjálfarar fjórir til fimm. Íþróttaskólinn var á laugardögum fyrir krakka á aldrinum þriggja til sex ára. Iðkendur í almennum fimleikum voru aðallega stúlkur.