Árið 1989 barst aðalstjórn Völsungs erindi frá Lilju Sæmundsdóttir sem starfaði á sambýli fatlaðra. Erindið varðaði ósk um að fá úthlutaðan tíma í íþróttahöllinni fyrir boccia. Þá yrði stofnuð bocciadeild innan Völsungs sem yrði deild fyrir fatlaða. Stjórn Völsungs tók vel í erindið og vildi strax fylgja erindinu eftir. Um haustið hófust æfingar undir merkjum Völsungs en það varð ekki fyrr en árið 1995 sem deildin varð formlega hluti af Íþróttafélaginu Völsungi. Árið áður varð deildin þó fullgildur aðili að Íþróttasambandi fatlaðra. Það eru ekki önnur dæmi til um að íþróttastarfsemi fatlaðra séu deild innan almenns íþróttafélags. Fyrsta árið þjálfaði Ingólfur Freysson en árið eftir tók Arnar Guðlaugsson við þjálfuninni.
Á fyrstu árunum æfðu átta fatlaðir einstaklingar boccia, einu sinni í viku fyrst en síðar urðu æfingar tvisvar sinnum í viku undir umsjón þjálfara sem fékk aðstoð frá Kiwanismönnum og starfsfólki sambýlis. Allt frá upphafi voru eldri borgarar virkir iðkendur í boccia, allt að fimmtíu manns hafa verið í þeim aldursflokki undir merkjum Völsungs.
Bocciaiðkendur hjá Völsungi sóttu nokkur mót fyrsta áratuginn sem deildin starfaði. Stærstu mótin voru Hængsmótið á Akureyri, Íslandsmótið og Norðurlandsmótið. Á Húsavík var haldið Þórðarmótið árlega og félagar í Kiwanisklúbbnum Skjálfanda stóðu að mótinu. Fyrsta mótið var haldið 1993. Félagar í Kiwanis sáu um dómgæslu, verðlaun og annað skipulag. Mótið var bæði fyrir fatlaða og aldraða, líkt og Hængsmótið á Akureyri. Íslandsmótið var tvískipt frá 1994, þá var keppt í liðakeppnum fyrri hluta vetur og síðan í einstaklingskeppni að vori. Opna Húsasvíkurmótið í boccia var fyrst haldið í febrúar 1999. Þátttakan var góð frá upphafi og hefur þetta mót verið árlega síðan þá.
Bocciamenn frá Völsungi hafa náð góðum árangri. Völsungur varð Norðurlandsmeistari A-liða í leiðakeppni Norðurlandsmótsins árið 1992 og liðið átti tvö lið í efstu deild Íslandsmótsins árið 1994. Árið 1995 var Kristbjörn Óskarsson valinn til þess að fara á Alþjóðasumarleika Special Olympics í New Haven í Bandaríkjunum. Hann var hluti af 27 manna hópi sem fór á leikana á vegum Íþróttasambands fatlaðra. Kristbjörn vann gullverðlaun í tvímenningskeppni og silfurverðlaun í einstaklingskeppninni. Annar keppandi frá Völsungi, Olgeir Heiðar Egilsson var valinn til að keppa á sömu leikum árið 1999.
Norræn trimmlandskeppni var haldin í flokki aldraðra og fatlaðra árið 1993. Ísland vann keppnina og á lokahófi keppninnar í mars 1994 tóku keppendur frá Húsavík við Flugleiðabikarnum fyrir hönd HSÞ en HSÞ sigraði í keppni héraðssambanda innbyrðis. Völsungar áttu stóran þátt í því en sér í lagi voru margir keppendur frá Húsavík í flokki aldraðra.
Einstaklingskeppni Íslandsmótsins í boccia var haldin á Húsavík í október 1995. Keppendur voru u.þ.b. 200 ásamt þjálfurum og farastjórum svo áætla má að í kringum 300 manns hafi verið á Húsavík vegna mótsins. Kiwanismenn og Bocciadeild Völsungs önnuðust undirbúning og framkvæmd mótsins. Mótið gekk afskaplega vel en bæjarstjórn, fyrirtæki og einstaklingar í bænum studdu vel við mótið. Árið eftir var Norðurlandsmótið haldið á Húsavík og voru keppendur um 100. Verkalýðsfélag Húsavíkur gaf öll verðlaun fyrir mótið.
Hvatningabikar Íþróttasambands fatlaðra var fyrst veittur til iðkanda hjá Völsungi árið 1996 en þá fékk Hafliði Jónsson bikarinn. Sambandið gaf Völsungi bikarinn en hann skyldi árlega veittur þeim sem sýnir besta ástundun og framfarir í boccia á Húsavík. Samhliða þessu heiðraði Kiwanisklúbburinn Skjálfandi bocciamann ársins hjá Völsungi.
