Í byrjun 9. áratugarins voru iðkendur í frjálsum íþróttum á Húsavík á bilinu 30-40. Aðstaða til æfinga var alls ekki nógu góð. Sumarið 1978 var völlurinn tekinn í notkun og var það framfaraskref fyrir iðkendur frjálsíþrótta.
Á vígsludegi vallarins fór fram kastmót og bestu kastarar landsins mættu til Húsavíkur. Guðni Halldórsson og Hreinn Halldórsson tóku þátt í kúluvarpi og Óskar Jakobsson og Erlendur Valdimarsson tóku þátt í kringlukasti. Hreinn Halldórsson varpaði kúlunni hvorki meira né minna en 20,64 metra á vígsludeginum sem var fjórði besti árangur í heiminum það árið. Því má segja að strax hafi verið sett laglegt vallarmet. Þó aðstaðan hafi vissulega verið orðin betri þá vantaði samt ennþá ýmislegt.
Frjálsíþróttir voru töluvert stundaðar á Húsavík um 1980. Unglingameistaramót Íslands var haldið á Húsavík vígsluár vallarins með 180 þáttakendum. Það var fyrsta Íslandsmótið sem haldið var á Húsavík. Völsungar sáu að mestu um skipulagningu og fáir keppendur frá öðrum aðildarfélögum HSÞ. Það ár fóru líka frjálsíþróttamenn fyrst á Álaborgarleikana og stóðu sig með prýði.
Árið 1980 varð Heimir Leifsson Íslandsmeistari bæði í þrístökki og hástökki án atrennu innanhúss og annar í langstökki. Sjónvarpað var frá viðburðinum. Árið 1981 var Landsmót UMFÍ haldið á Akureyri og mikið var lagt í undirbúning fyrir það hjá Völsungum. Eftir það færðist ró yfir frjálsíþróttir hjá Völsungum og var greinin í lægð í nokkur ár. Það voru ákveðnir aldurshópar sem vantaði inn í greinina og leit hreinlega út fyrir að frjálsíþróttir væru ekki í tísku. Gengi á mótum var ekkert sérstakt þó reynt væri að kynda undir áhugann hjá ungmennum. Fjöldi móta stóð til boða en frjálsíþróttirnar risu ekki almennilega aftur fyrr en eftir landsmótið á Húsavík 1987.
Meistaramót Íslands 14 ára og yngri var haldið á Húsavík sumarið 1988 og voru keppendur vel á þriðja hundraðið. Keppendur komu víðsvegar að eða gott sem frá öllu landinu. HSÞ vann til fimm gullverðlauna, sjö silfurverðlauna og þriggja bronsverðlauna. Völsungar áttu sinn hluta af því.
Frá og með þessu móti má segja að Völsungur hafi eignast Íslandsmeistara í einhverri frjálsíþróttagrein flest árin, jafnvel fleiri en einn og í hinum ýmsu greinum og aldursflokkum. Algengast var að meistararnir komu úr yngstu flokkunum. Sumarið 1992 var Meistaramót Íslands 22 ára og yngri haldið á Húsavík. Þar vann HSÞ til tólf verðlauna. Þar á meðal vann Hákon Sigurðsson Íslandsmeistaratitilinn í 1500 metra og 800 metra hlaupi og Guðný Sveinbjörnsdóttir varð þriðja í spjótkasti.
Íslandsmeistarar Völsungs í yngri flokkunum á þessum árum voru Guðný Sveinbjörnsdóttir, Katla S. Skarphéðinsdóttir, Hákon Sigurðsson, Erna Dögg Þorvaldsdóttir, Arngrímur Arnarson, Valgerður Jónsdóttir og Sigurbjörg Hjartardóttir. Því má vel bæta við að þessir iðkendur og margir aðrir hafa staðið á palli í sinni íþróttagrein á Íslandsmótum í öðru og þriðja sæti. Nokkrir af þessum aðilum voru einnig valdir í unglingalandslið í sinni íþróttagrein og keppt fyrir Ísland heima og erlendis.
Árið 1993 var mjög gott hjá frjálsíþróttaiðkendum hjá Völsungi. Iðkendur voru um 40 og á afrekaskrá unglinga þar sem skráð voru sex bestu afrek á landinu í hverri grein voru átta unglingar frá Húsavík nefndir og nokkrir þeirra meðal þeirra bestu í þremur greinum. Þetta ár var sterkur hópur við æfingar en sveiflurnar miklar en miðað við 40 iðkendur þetta ár voru iðkendur komnir niður í tíu árið 1997. Aðstaðan batnaði til muna með tilkomu íþróttahallarinnar en þrátt fyrir að æfingum var haldið úti allt að ellefu mánuði ársins varð stöðugleiki iðkenda ekki betri en áður var nefnt. Starfsemin var aftur komin í lægð um aldamótin.
Samvinnan við HSÞ gerir starfsemi frjálsíþróttanna frábrugðna öðrum greinum. Alla jafna keppa Völsungar út á við í nafni HSÞ og sem slíkir kepptu iðkendur í 1. og 2. deild bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands. Frjálsíþróttadeildin var því í góðum málum fjárhagslega að því þjálfarar voru samnýttir í héraðinu.
Rétt eins og í öðrum deildum félagsins verður seint hægt að telja alla þá upp sem hafa gert starfsemi deildarinnar mögulega. Fjölmargir hafa komið að starfinu og margir þjálfarar komið til starfa í lengri eða skemmri tíma. Þegar deildin var sem öflugust um og eftir 1990 voru Kristjana Skúladóttir og Jón Benónýsson þjálfarar ásamt fleirum.
